About
SL lífeyrissjóður var stofnaður 1974 þegar allt launafólk landsins var lögskyldað til að greiða í lífeyrissjóði. SL er opinn sjóður og hlutlaus gagnvart bönkum og stéttarfélögum og jafnframt er eini lífeyrissjóðurinn sem hefur aldrei þurft að skerða lífeyrisréttindi. Sjóðurinn hefur frá upphafi verið varfærinn fjárfestir og tekur alvarlega það hlutverk að fara gætilega með fjármuni sem fjöldi fólks byggir fjárhagslega afkomu sína á. SL hlaut þannig verðlaun árið 2018 (Verdicta) fyrir hæstu ávöxtun sameignarsjóðs á 20 ára tímabili. Hjá sjóðnum starfa 16 manns og framkvæmdastjóri er Sigurbjörn Sigurbjörnsson, viðskiptafræðingur
.
What would you like to share, ?